Smá uppdeit fyrir mig :)

Nú eru komnar 5 vikur síðan ég byrjaði á hráfæðinu :)

Ég er hætt á svefnlyfjum, þarf þau ekki lengur, sofna bara eins og ungabarn og sef vel alla nóttina, og þarf minni svefn. Ég er orkumeiri og glaðlyndari :D ég finn minna fyrir verkjum í líkamanum sem þýðir ég er farin að geta gert meira en áður :D

Vigtin stendur í stað, verð að hætta að stíga á hana…öhömm…hehe…en það kemur.

Það sem ég er búin að gera er; ég hef ekki borðað pizzu síðan ég byrjaði (nema speltpizzu mannsins míns) ekki borðað pylsur, eða unnar kjötvörur. Ég fór suður í 5 daga, og þá borðaði ég einu sinni hambó með frönskum, aðeins af brauði, en öðru leyti bara hollan mat :) jú og kanelsnúða ;)

Ég borða alltaf kvöldmat, og þá eldaðan frá grunni. Mikið af grænmeti oftast, en reyndar með feta osti :) ég er nánast hætt að drekka gos, drekk frekar vatn, hef minnkað te drykkjuna til muna og nota þá agave sýróp í staðinn fyrir sykur.

Ég finn mikinn mun á bjúgsöfnun, og get stundum notað hring sem ég hef ekki getað notað lengi :D

Þannig þetta er snilld og ég held ótrauð áfram :D

Suður og heim…tvisvar… :)

Já hérna…flakkið á manni :D

Fórum suður á miðvikudaginn var, með 3 stelpur, Silja varð eftir heima útaf skólanum ( og já það er ekki pláss fyrir þær 4 í bílnum…) keyrðum suður í snjókomu og hálku, sást ekki á milli stika á Holtavörðuheiðinni, og fljúgandi hálka alla leið upp í Borgarnes, en suður fórum við ;) Á fimmtudagsmorguninn komst ég loksins til Unnar siss og fékk að knúsa og kreista litla kút :D awww hann er bara yndislegur!!….verst hvað er langt á milli Rvíkur og Ak… :/

Á föstudagskvöldinu fórum við spúsi á Faust í Borgarleikhúsinu, sem var mjög skemmtileg sýning, vel gerð og flott. Kíktum á Ölver eftir það og hittum nokkra gamla kunningja ;) Eins hitti ég gamlan vin á föstudeginum, sem ég hef ekki séð í ein 10 ár…omg hvað tíminn líður. Spúsi tók líka próf á föstudeginum sem hann stóðst með glanz ;)

Á sunnudeginum fórum við á sýningu hjá Íslenska dansflokknum, sem var spes vægast sagt en flott, og keyrðum svo heim um nóttina, snjókoma alla leiðina, og skriðum hér inn heima hálfþrjú um nóttina…hrikalega gott að komast heim hehe :D

Svo í gærmorgun (þriðjudag) flaug ég suður með fyrstu vél, fór á Ráðstefnu hjá Stígamótum og flaug svo heim aftur í gærkvöldi…þannig ég er alveg búin að fá nóg af borginni í bili!! hehe…

En þetta var fínt, yndislegt að knúsa litla kút og þau öll, en heima er samt best :)

Hjólafæri í dag, spúsi hjólaði allavega í vinnuna, ég sé til á morgun, finnst of mikið vatn og drulla á götunum til að tíma að skíta út Skuggann minn! ;)

Nóg í bili…over and out…

ps hráfæðið gengur fínt, þrátt fyrir að hafa svindlað aðeins í suðurferðunum, og ég finn hvað mér líður betur þegar ég næ að halda matarræðinu réttu ;)

Bílaskipti :)

Jæja þá er marr laus við Galloperinn!! :D skiptum honum upp í Toyotu Carinu station…árg 94…sér varla á honum utan sem innan…nema það er beygla á öðru frambrettinu…en það fylgdi annað bretti með í sama lit…skiptum um það fljótlega ;)

Svo erum við að fara suður á miðvikudaginn! Ég þarf að fara til doksa á fimmtudag, og svo nottla sjá litla systurson minn ;) og fara í leikhús á Faust…og svo sýningu hjá dansflokknum…menningarferð hehe…

Tökum litlu stelpurnar með og Sylvíu…Silja passar hús og ketti á meðan og mætir í skólann :)

Annars er allt á kafi í snjó…fljúgandi hálka…og marr er óvanur því að vera bara á framdrifnum bíl…en það hefst nú allt saman :D

Eigið góða daga :D

Breyting :)

Set þetta inn svona fyrir mig ;)

Á öskudag byrjaði ég á hráfæði, en borða samt kvöldmat, þá var ég 92,8kg, í dag mánudag (þ.e. 5 dögum síðar) er ég 88,9kg og líður þrælvel :D Orkumeiri, sef betur, er kátari, og ekki uppþemd :D sem er snilld ;)

set hér inn link á uppskriftir af möndlumjólk og grænum drykk… http://arnarnes.blogcentral.is/sida/2393196/  og fleirum góðum uppskriftum ;)

Síðan er hér slóð á fullt af góðum uppskriftum; http://cafesigrun.com/ 

Bara snilld :D

Systursonur :)

Þann 18.feb kl 12.38 eignaðist ég systurson hehe…Unnur siss og Hilli eignuðust lítinn prins :D hann var 15 merkur og 54cm, heljarmikill strákur, og massaður hahahaha :D allt gekk rosavel og þau voru komin heim samdægurs ;) svona á að gera þetta ;)

Annars er lítið að frétta héðan, það snjóar og snjóar…náði þó að viðra Skuggann minn fyrir viku síðan! Í smástund, en það er alltaf smástund…

Hætt í skólanum, búin að minnka mikið við mig vinnuna í Aflinu, byrjuð á hráfæði sem er snilld og líður strax miklu betur!

haha ekkert að frétta greinilega tíhí….

Over and out

Febrúar

Það styttist með hverjum deginum í vorið, dreymi um Skuggann minn á næturnar þar sem við svífum saman í hita og sól :D

Fórum á þorrablót hjá Tíunni á föstudagskvöldið, rosa gaman, mín datt í það aldrei þessu vant og dansaði af mér rahggatið á Vélsmiðjunni hehe…tókum svo restina af helginni í rólegheitum heima við, sem er alveg nauðsynlegt öðru hvoru ;)

Systir mín bætti á sig einu árinu í viðbót í mánuðinum, og litla dóttir mín að verða 12 ára! Getur varla verið að ég sé orðin svona gömul hehe…

Annars er ég að fara suður á fimmtudagskvöldið, á málþing í HR á föstudeginum og flýg norður aftur um kvöldið, stutt stopp sem ég ætla að nýta til að hitta litlu siss ;)

Eigið góða daga :D

Menning :)

Mikill menningardagur var á laugardaginn hjá okkur :) Fyrst fóru við á árshátíð Oddeyrarskóla, frá 1 til 5.30 hehe…og svo skunduðum við í leikhúsið að sjá 39 þrep ;) og vááá hvað það var gaman, hef ekki hlegið svona mikið lengi! Mæli sko með þessari sýningu ;) 4 leikarar…139 hlutverk hehe….snilldar uppsetning og bara já stórkostleg upplifun út í eitt ;)

Tók svo sunnudaginn í náttfatadag…alveg búin á því…og er enn…en það lagast held ég…

Er að fara með Birnu mína í röngten myndatöku á eftir, henni er svo oft illt í annari mjöðminni…þarf að skoða það. Svo styttist í ösku(r)dag, bolludag og sprengidag ;) þá verður nú stuð á Hóli býst ég við…

Þorrablót hjá 10unni á föstudagskvöld, erum að spá í að skella okkur hjónin…annars voða lítið að frétta hér…nema ég er aaaalveg að vera móðursystir einu sinni enn! :D víííí bara dagaspursmál hvenær Unnur siss fer að eiga ;) vííí…

Eigið góða daga!

Er hér enn…

Mikið að gera nottla eins og stundum áður ;)

Byrjaði í skóla í janúar…eða sko kúrs…á vegum Símenntunar…í Háskólanum….Kynferðisofbeldi, vanræksla og ill meðferð…mjög áhugavert og stundum erfitt, þetta er tekið í 2ja daga lotum, búin með janúar og svo er aftur um 20.feb..og svo er spurning um verkefnavinnu…

Býst við ég skreppist suður 12.feb á málþing um unga gerendur…þannig það er nóg að gera :)

Allt gengur annars sinn vanagang hér á bæ, allir þroskast og stækka, nóg að gera hjá spúsa í vinnunni, og svo bíður marr eftir vorinu víííí :D

Stefni á að hjóla af mér rahaggið í sumar :D ferðast og njóta þess að vera til :D

Eigið góða daga elskurnar ;)

Mánudagur…

Yndisleg helgi að baki! :D spúsi semsagt fór með mig á Illugastaði og þar biðu Hrefna og Guðjón eftir okkur með góðan mat og sleða ;) við spiluðum og borðuðum góðan mat, kjöftuðum frá okkur allt vit og svo var bæði gufa og pottur á svæðinu ;) á laugardag komu svo Palli og Bergný með krakkana og fleiri sleða og léku sér í snjónum…ég var nú ekki alveg til í það, dauðkvefuð og fín ;) en ég horfði á…spúsi grillaði svo nautasteik ofan í liðið og svo var spilað meira og meira, helgin endaði 3:3 á milli stelpu og strákaliða :D hehe…í gær komu Palli og Bergný aftur og fór liðið upp í Víkurskarð en við hjónin kúrðum okkur með sæng og popp og lásum bækur langt fram á kvöld, YNDISLEGT! :D fórum í gufu og lásum svo meira og meira ;) í morgun drifum við okkur á lappir, skúruðum allan bústaðinn út úr dyrum og renndum heim, dásamlega afslöppuð og úthvíld ;)

Daglegt amstur tekið við, en þó léttari í lundu enda frábært að brjóta upp svartasta skammdegið svona :D

Ástarþakkir fyrir mig elsku ástin mín og þið frábæru vinir :D

Föstudagur :)

Og ég er að fara í óvissuferð með spúsa mínum :D veit ekki hvert, veit bara ég er að fara í bústað og veit ekki með hverjum….híhí…hlakka mikið til, ætlum að spila og borða góðan mat, veit það er sennilega heitur pottur þarna mmmm… sem ég ætla kannski í ef kvefið mitt fer að skána…hóst hóst…

Fór til dokksa í gær og ég er með kvefvírus heldur hann, búin að vera með kvef síðan fyrir jól! hvað er það?? en þetta kemur

Best að fara að pakka e-hverju niður! :D

Eigið góða helgi víííí…